Fyrirgefið bloggleysið, kæru lesendur! Þetta er aðeins tímafrekara en ég bjóst við, þetta Búa-í-útlöndum grín.
Mikið hefur verið brallað síðustu daga, stöðupróf í spænsku sem fór glimrandi - prik í kennarakladdann til Iðunnar og Sigríðar Ragnars. Ég var sett í ,,advanced" hóp með 8 öðrum, og fyrsti tíminn er á morgun, mánudag.
Svo fór ég í dagsferð til fjallahéraðsins Montserrat sem var alveg magnað. Þar fórum við í göngu um fjöllin og hlustuðum svo á 60 manna drengjakór syngja fyrir okkur þessa líka prýðilegu helgisöngva á latínu. Gaman að sjá litlu krílin, þau vita ekki hvað bíður þeirra ef þau voga sér að kynþroskast.
Gaman er að segja frá því að það sem áttu að verða herbergis (íbúðar-) félagar mínir, Daninn indæli og Belginn, blönduðust saman á undarlegan hátt og birtust mér í formi indæls, 26 ára gamals Írana. Ég bý semsagt með honum og engum öðrum, hinir eru farnir heim. Mjög áhugavert kombó, ég og þessi Írani, hann talar verulega bjagaða ensku, en elskar að baka eplapæ og læra verkfræði. Í Japan. Hingað er hann hins vegar kominn til að læra spænsku og að dansa salsa.
Allavega, á milli þess sem ég mingla við Kanana og Íranann geng ég götur og brosi eins og þrolli, því að þessi borg er mergjaðasti staður í heimi. Ég get ekki lýst því hvað allt er frábært hér, andrúmsloftið, mannfjöldinn, tungumálið, kaffihúsin, umhverfið... allt! Ég gæti búið hér til eilífðar. (ef ekki væri fyrir allt fólkið sem ég elska á Íslandi).
Allavega, vonandi eru allir ískrandi hamingjusamir og hressir í slyddunni.
Hasta luego!
Sunday, January 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Gaman að heyra að þú skulir vera svona sæl, enda lítið annað hægt í þessu umhverfi.....svona lífið að vera.
Hins vegar er þetta déskotans vesen að þú skulir vera farin. Nú þurfum við að panta dálk í smáauglýsingum Fréttablaðsins og auglýsa eftir ungri, lífsglaðri og skemmtilegri stúlku sem er alveg eins og GSG......vandfundið skal ég segja þér.
Annars erum við í góðum gír hér heima. Ég tók að mér heljarinnar verkefni í gær þar sem ég mokaði upp öllum snjónum í garðinum til að búa til snjóhús fyrir stelpurnar.....var til myrkurs og orðinn nokkuð lúinn, enda stór garður og mikill snjór....það rifjuðust upp fyrir mér gömlu góðu dagarnir þegar ég var á hand-skóflunni hjá Gunnari og Guðmundi og hafði tileinkað mér góðan og skilvirkan mokstursstíl með frambyggða Union skóflu....en nóg um það, það er búið að rigna í allan dag, 10 stiga hiti og mikill vindur. Kjör aðstæður til snjóbræðslu. Held að snjóhúsið sem var með 3 metra lofthæð í gær sé meira hentugt fyrir litla húsamús í dag.....svona er lífið.
Hafðu það gott Guðrún Sóley mín.
Sveinbjörg og grallararnir biðja að heilsa.
Þinn Bróðir Svenni
Hæ, hó. Mér finnst pínu vandræðalegt að koma á eftir svona fallegu kommenti frá stóra bróður þínum þar sem allt sem ég mun hér með segja mun hljóma sérdeilis þrollalegt.
Það er frábært að heyra að allt stendur ríflega undir væntingum. Mætti kannski líkja væntingunum við lágt rjáfur? Þakbita í lágum kofa? Jæja. Jæja, jæja.
Aftur í slydduna, mér líður ágætlega í henni. Það vekur ákveðna skáldatilfinningu að ganga vot í fæturna í tunglskininu. Með kaldar tær og hlýja fingur. Já, svei mér þá.
Láttu heyra í þér múffugeitin mín. Og heyrðu, Arngunnur, sem munt líklega lesa þetta; ég sá systur þína syngja í morgun, rosalega syngur hún vel.
Elsku Svenni! Gaman að heyra frá þér!!! Þetta komment made my day, það er svo gaman að sjá fyrir sér þig að moka og stelpurnar sjúklega hressar í snjóhúsi. Snjóhús eru fáránleg fjarlæg tilhugsun þar sem ég er akkúrat núna... Allavega, gott að heyra að þið eruð hress og kát, knúsaðu stelpurnar og Sveinbjörgu frá mér, ég sakna ykkar allra helling!
Og ELSKU HALLA líka, gaman að heyra frá þér LÍKA! Gamla snilli-geitin mín. Vonandi hefurðu það gott, það var eitthvað vesen með gjöfina handa litla krílinu hennar Írisar, Arnar getur útskýrt það fyrir þér.
Sendi e-mail rétt strax. - xxx Grussa
Vá, hvað það er gaman að lesa um ævintýri þín í Barcelona og frábært að þú hefur það svona gott. Bið að heilsa kombóírananum.
Halló elsku systir. Sit hér í "bráðum-að-verða-hánótt" og læri fjármálafræði (ekki spyrja mig af hverju), en svo datt mér í hug - hey, hvað skyldi systir vera að bralla á Spáni. Svo hér er ég... Það er alveg frábærlega skemmtilegt að heyra þig segja frá þessu, sérstaklega þetta með stökkbreytta Danann. En eitt máttu vita, að þegar ég sit í 15° frostinu á laugardaginn skal ég hugsa hlýlega til þín.
Farðu nú vel með þig og passaðu þig á öllum kynþroska súkkulaðidrengjunum :)
Bæ bæ, Hrólfur (bróðir)/2.
LORD.
Barðelona sounds boobalicious. Hafðu það gott elskan.
kv.soffa
Hahaha Hrólfur, thú ert nu meiri flipparinn ad vera ad laera fjarmaladfraedi. Thad er an efa fríkadasta fagid í ollu skolakerfinu. Gaman ad heyra í thér, vonandi hefurdu thad gott. Maeli med threfoldum espresso vid naeturlestur fyrir prof. Virkar eins og spítt, og oll elskum vid spítt.
sætabrauðið mitt, gott að heyra að þér líki vel í barcelona... :) myndirnar eru algjör snilld! vá hvað við skemmtum okkur vel og fallega þegar við vorum lítil og saklaus.
hafðu það sem best g-lo, ég mun fylgjast spennt með blogginu.
1 luv....Lena
Hæ hó elsku systir.
Voðalega er gaman hvað þú ert að að hnoðast vel saman við þetta Barcelona. Ég hef sjaldan haft svona mikið að gera. Ef ég hef einhverntímann þurft á lengri sólarhring að halda eða gæti sleppt því að sofa eða eitthvað þá væri það núna. Dagarnir mínir eru svo: vakna - elda hafragraut - skóli - framtíðarsjitt/læra/læra línurnar mínar - herranæturæfing - læra, læra línurnar mínar/framtíðarsjitt - Halla - sofa - vakna -...
Jahá en núna skutlaðist ég heima á Álftanes til að skrifa íslenskuritgerð um einleikinn Brák og fara í gegnum línurnar mínar...því ÚFF...það er rennsli á morgun! Sjæse.
Heyrðu ég verð að fara að gera þessa ritgerð.
kv.Maggi brói
bara að gera tilraun að láta heyra í mér.
mamma
Post a Comment