Thursday, January 24, 2008

Mætt

Jæja, eftir hrakfallaferð lífs míns er ég loksins komin til Barcelona. Er núna á hótelherbergi í miðri borginni, og í dag verður farið með mig í íbúðina mína á "kampusnum". Gaman gaman. Spánverjakrúttunum tókst að týna farangrinum mínum, með öllum 33 þúsund króna yfirvigtarkílóunum mínum. High five, Aerupuerto de Barcelona!

Er annars í nettu kúltúrsjokki yfir öllum Ameríkönunum sem eru hér, þetta er yndislegt fólk en rosalega orkumikið og finnst allt frá "Júróp" vera "febjúlös" og "gordjöss". Ég ætla að tileinka mér þessa últra-jákvæðni áður en ég kem heim.

Jæja, nú verð ég að hlaupa, blogga meira seinna. Ójá.

Heyrðu, Björn Ingi bara hættur í borginni! Farinn í fýlu! Sjitt hvað maður er vel með á nótunum hérna úti á Hlíðarenda. Gotta love mbl.is.

2 comments:

Halla said...

Jahá! Þú segir mér fréttir. Ég hugsa að ég beili á mbl.is og komi bara hingað fyrir svona "best of" samantekt úr fréttum dagsins.

En annars, gott að heyra að ferðin tókst vel og gangi þér áfram vel. Heyri vonandi í þér fljótlega.

Anonymous said...

Líst mér á! Konan bara mætt á vefinn. Þú heldur þessu áfram og ég fylgist spennt með!
Lifi internetið!