Monday, January 7, 2008

Myndagaman

Til að launa dyggum lesendum þessarar síðu tryggðina og stuðninginn í gegnum árin hef ég ákveðið að stofna myndasíðu.
Ójá, það er kominn tími til að bomba þessum hundruðum mynda út í sýberspeis - engin miskunn, ekkert einkalíf. Þarna má sjá myndir af sveittum litlum gríslingum í sólbaði, litlum villisvínum í sveitaferð og uppáhaldsgöltunum mínum í partýum og á böllum.

Ég vil þakka Gunni Eriksdóttur og Guðrúnu Rós Árnadóttur kærlega fyrir lánið á myndum! Ég bað þær góðfúslega um leyfi, sem þær veittu án nokkurra vandkvæða, enda gull af konum þar á ferð. Þúsund þakkir, hunangsbökur!

Myndirnar má finna hér eða, fyrir flippaða fólkið - á hlekknum ,,myndir" hér til hægri.

7 comments:

Egill eda Edda said...

Ég er svo helvíti sátt með þetta allt saman. Eðalmyndir og unaðslegt blogg.

Kv. Edda.

Anonymous said...

Já, ég tek undir með þér Edda! Kláralega eitt af heitustu bloggum norðan Alpafjalla og yndislegt að skoða þessar myndir og rifja upp gamla tíma :)

Sandra said...

þú ert svo brjálað töff gella fröken guðrún sóley

Anonymous said...

Jæja koma svo blogga meira. Og fleiri myndir, já fleiri segi ég.

Halla Oddný said...

Já meira meira.

Anonymous said...

Guðrún Sóley - okkur vantar netfang hjá þér :) Góða ferð á morgun!!! Vinkonur þínar af Geðdeildinni, Bergdís og Halla

Guðrún Sóley said...

Takk Fræðsludeildarskvísur, e-mailið mitt er gsoley@gmail.com. Góð ábending, þarf að birta það á síðunni. Vonandi er fjör í vinnunni, kaffivélin til friðs og blússandi hamingja í hverju horni í Landssímahúsinu!