Hahahahaha,ahahaahaha...
Ég var að koma úr skapandi-skrifa tíma, þar sem kennarinn las upp úr Carmen eftir Georges Bizet.
Eftir fimm mínútna lestur var bekkjarfélaga mínum, Repúblíkana-Texas-krúttinu honum Brennan Peel, nóg boðið, og gekk út, yfirgengilega hneykslaður á hegðun kvenna og opinskáum kynlífslýsingum í bókinni. Hann gat ekki setið undir þessum ólifnaði stundinni lengur. Ahaha, þetta var alveg frábært.
Maður með sterka siðferðiskennd þar á ferð.
Hann ólst upp á búgarði í Texas, og foreldrar hans eiga 3 bómullarakra og hann er major í ,,Amerískum fræðum" við Southwestern háskóla. Hversu mikil steríótýpa af sjálfum sér er hægt að vera? Grillaður kjúklingur, kartöflustappa og maís í hvert mál.
Allavega, langaði bara að deila þessu skemmtilega litla atviki úr hversdagslífinu með ykkur. Gamanaðessu!
Wednesday, February 20, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
you gotta love those yankees!
þetta blogg er svo best!
mig langar til barce....eða texas.
Jeij, stelpur! Gaman að heyra frá ykkur... Fékk smávegis, ogguponsu, ofurvæga heimþrá um daginn og tók þá hálftíma myndaskoðunar-session... Úff hvað það var fáránlega gaman í MR, ég sakna þess svo að hafa alla þessa snillinga í kringum mig á hverjum degi - þvílíkur lúxus! Sakna ykkar beggja (Lena, ég veit ekki hversu margar myndir ég á af þér þar sem þú ert hreinlega holdgervingur stuðs&fílíngs, það er alveg ljóst að það er ekkert partý án Lenu!) Hey já, talandi um myndir, Soffa, mér líst tremmavel á nýju síðuna þína, endilega bombaðu inn eins mörgum myndum og þú getur...:) Jeeeeee....
pirraðist ögn á þér hérna, alltaf auðveldara að sjá steríotýpurnar hjá öðrum en sjálfum sér ;-)
Post a Comment