Lífið er smám saman að komast í fastar skorður hér í Barcelona.
Ég er í sjöunda himni með allt í skólanum, kennararnir eru frábærir og fögin áhugaverð.
Spænskuna kennir hin afar smágerða Natalia frá Sevilla. Hún er eins og lítil hvellhetta, pínkulítil en full af orku, og kennir spænsku eins og djöfullinn sé á hælunum á henni. Sem er akkúrat það sem ég þarf á að halda.
Markaðsfræðina kennir erkitöffarinn og lífskúnstnerinn Eduardo , sem er ófeiminn við að deila með okkur hversu successful og mikilvægur hann er. Hann á eitt stærsta fasteignafyrirtækið á Spáni, sem hefur fengið umfjöllun í Times New York, Fortune, ofl. ofl. Við munum rannsaka til hlítar markaðsfræðina á bak við fyrirtækin IKEA, NOKIA, Zara, Ryanair og Lenovo. Hljómar mjög spennandi, sérstaklega þar sem tvö af þessum fyrirtækjum eru skandínavísk og ég þekki þau nokkuð vel. Úje, gaman gaman.
Um helgina var carnival hér á Spáni, og í tilefni af því vaknaði ég eldsnemma í gærmorgun og fór með Könunum Lori, Ryan, Brittany og Norbert (hahaha, ég veit) til strandarinnar til að fylgjast með þúsundum Spánverja (aðallega klæðskiptinga) spóka sig í litríkum búningum. Gay Pride hefði fölnað við hliðina á þessu húllumhæi. Skemmti mér stórvel.
Nú hefði verið gaman að láta myndir fylgja með færslunni, og þó fyrr hefði verið, en þannig er mál með vexti, kæru lesendur, að fyrir örlítil, smávegis pínu-mistök, gleymdi ég snúrunni sem tengir myndavélina við tölvuna, þannig að ég get ekki fært myndir yfir. En ég kippi þessu í lag einhvern veginn.
Heyrðu, haldiði ekki að snillingurinn hún Ágústa vinkona sé búin að panta sér flug hingað þann 25. febrúar! Er svo ótrúlega spennt að sjá hana og sýna henni alla æðislegu staðina sem ég hef uppgötvað í borginni. Mæli með því að aðrir fari að hennar fordæmi, það er ekki alltaf sem ykkur býðst FRÍ gisting OG frí leiðsögn um flottustu borg Evrópu... Haaaa, koma svo! Allir í heimsókn til Grussu sinnar!
Sunday, February 3, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
astarkjot!!! eg vaeri nu til i ad koma og spoka mig i solinni tharna og heyra undursamlega tungumalid i eyrum minum.
hefurdu sed julio iglesias a gotunum? eda kannski ricky martin?
Hljómar vel. Ég væri til í að sjá myndir... þú reynir að redda þessari snúru :)
FRÍ gisting OG frí leiðsögn ... hljómar sérlega vel þar sem ég er einmitt búinn að bóka far fyrir alla fjölskylduna í sumar. Verðum hjá þér í 3 vikur.
Vinnufélagi á Vefdeildinni.
Hæ elsku systir.
Pabbi sagði mér góðu fréttirnar með vinnuna. Ef ég hef ekki sagt þér það áður þá segi ég þér það núna: Þú ert alveg ótrúlega magnaður snillingur og ég er alvega að springa úr stolti yfir þér.
Bæ bæ og hafðu það rosagott.
Hrólfur.
Hæ nafna!
Heldurðu ekki að ég hafi út í bláinn farið að velta því fyrir mér hvernig Guðrún Sóley hafi það í Barcelona þegar ég lá veik og andvaka uppi í rúmi í gærnótt. Og voila (takk google) ég fann þessa megahressu síðu. Skemmtu þér brjálæðislega vel og njóttu veðurblíðunnar. Svellkaldar kveðjur.
Nýkominn með slóðina og réttbyrjaður að lesa. Frí gisting...? Gættu að hverju þú lofar ;-))
RaggiG
Omaro Hijo de Magnús! Lítið mál, þetta er díll. Sérstaklega ef þú tekur Höllu og co með, þá verður þetta sveitt fjölskyldufestival í íbúðinni minni. 11 manns í þriggja herbergja íbúð? Iss! Í þrjár heilar vikur? Piss! Þröngt megar sáttir sitja, segi ég. Fyrst við erum byrjuð á þessu getum við alveg eins gert þetta almennilega, þú tekur alla Vefdeildina með þér og Halla kippir Starfsmannasviði með líka. The more the merrier!
Elsku Hrólfur!
Takk fyrir falleg orð! Gleður mig ekkert smá að fá svona hrós! Ég er sjálf voða voða ánægð með þetta, ætli ég verði ekki að skella í eins og eina færslu til að segja fólki hvað við erum að tala um :)
Hahaha, hæ Raggi - gaman að þú skulir fylgjast með. Ég reyni að fara varlega í loforðin, er bara svo spennt fyrir að fá fólk i heimsókn hingað að ég geng svona langt itl að lokka fólk á staðinn :) Kannski yfirfyllist allt hér áður en ég veit af, en Den tid den sorg, eins og þeir segja. Vona að þið hafið það gott á Íslandi!
Post a Comment