Thursday, February 7, 2008

Makkaróní

Einn íbúi hefur bæst við heimilislífið í Carrer D'Aragó 62: Belginn Laurance.
Mér til mikillar furðu var þessi Laurance kvenkyns, mér finnst eitthvað rosalega kjánalegt við að heita Lórens og vera stelpa, en svona flippi kynnist maður í útlöndum. Hún virðist algjört gull af konu, ofsalega indæl og pen. Ekta svona discreet Fransmaður, sem læðist um íbúðina og hlær lágt og hlustar á frönskudöbbað Friends í tölvunni sinni.

Í gær héldum við svo matarboð í íbúðinni okkar, ég, hún og Amir. Buðum 5 manns úr háskólanum, allt meistaranemar í verkfræði sem eru með þeim í deild. (Jebb Svenni, 5 verkfræðinemar. High five!)
Laurance eldaði makkóróní með skinku og osti, eldamennska sem átti skilið minnst tvær Michelin stjörnur, slíkur var standardinn. Skemmtileg upplifun fyrir raungreinablinda manneskju á borð við sjálfa mig að eyða kvöldstund með 5 verkfræðinemum frá Mexíkó, Þýskalandi, Tyrklandi, Portúgal (2), Íran og Belgíu, og tala spænsku allt kvöldið og langt fram á nótt. Skemmti mér frábærlega, þetta var snilldarboð og skal endurtakast um helgina hjá Portúgalanum.

Komst að því að bæði The Hives OG Radiohead eru að fara að halda tónleika hér á komandi mánuðum, hversu nett er það? Lórens ætlar að komast að því hvar við getum fengið miða. Schnilld!

Fyrstu tveir vinnudagarnir voru mjög skemmtilegir, fólkið á skrifstofunni er mjög vingjarnlegt og margir húmoristar að vinna þarna, sem ég kann vel að meta. Maður hatar ekki vinnustaðagrínið. Nú er mest verið að setja mig inn í hlutina og kenna mér á netforritið þeirra ofl ofl. Þýddi reyndar eina fasteignaauglýsingu yfir á dönsku, that was a first. :D

Úff, ég er alveg dottin í "Bora-í-nefið" bloggstílinn hérna. Verð að hætta þessum upptalningum og langdregnu lýsingum á hversdagslífi. Þetta gengur ekki.
Er hér með komin í átak, blogga stutt og hnitmiðað, no nonsense from now on.

Takk!

Bless!

(P.S. vil þakka erkisnillingunum hjá Landsbanka Íslands sem eru búin að kommenta hér í kommentakerfinu eins og enginn sé morgundagurinn, mér hlýnar um hjartarætur við að lesa allar þessar frábæru athugasemdir.)

6 comments:

Anonymous said...

Mér finnst einmitt svo gaman að lesa um hversdagslíf þitt. Það er miklu meira spennandi að lesa um hversdagslegt líf í Barcelona heldur en í Reykjavík.

Anonymous said...

go grussa með nonsensið!
ég kíki á hverjum degi, oft á dag á milli þess sem ég les um femínista listakjéllur og bögla saman í ritgerð!
knús í kless
sódó

Halla said...

Æji:(
Þú átt aldrei eftir að koma heim!

Anonymous said...

Halla: Gamla súra...

Þetta er frábært. Aðlögunarhæfni.is Vá, hvað ég sé þig mikið fyrir mér að selja hús. hahaha...guðrún sóley...

skemmtu þér

kv.Maggi

Anonymous said...

Hæ Grussa,
frábært að lesa löngu og skemmtilegu færslurnar frá Barcelona! Ég kem pottó í heimsókn fyrr eða síðar.

P.S. alltaf þegar ég les færslurnar heyri ég þær lesnar í dramatískum og skemmtilegum G Sól stíl! Það er frábært!

Halla Oddný said...

Ég er að friggin kommenta núna. Hvað viltu eiginlega meira? Ha? SÁL MÍNA!?