Önnur helgi afstaðin... Úgúlele.
Á föstudaginn fór ég í hjólatúr um Barcelona með nokkrum krökkum úr skólanum og leiðsögumanni. Þrátt fyrir að maður hafi misst nokkur kúlstig í túristabrunninn þá var ferðin algjör snilld. Vorum í rúma fjóra tíma og sáum ótrúlega margt skemmtilegt, það er klárt mál að hjólreiðar eru mjög sniðugur ferðamáti hér í borg. Meðal annars hjóluðum við eftir ströndinni hér í Barcelona, Barceloneta - og það var vægast sagt unaðslegt, breiðir göngu/og hjólastígar, hrein sandströnd, iðandi öldur og fólk var nú þegar byrjað að spila blak á ströndinni og sleikja sólina, þrátt fyrir að aðeins sé febrúar. Hlakka tremma mikið til í apríl/maí, þegar farið verður að hlýna duglega, að sögn kennarana í skólanum.
Já, skólinn, alveg rétt - nýjustu fréttir þaðan eru að ég skipti úr heimspeki yfir í ljósmyndun. Það hljómar kannski ekki eins og mjög skynsamlegt múv, en ég hugleiddi þetta vel og komst að þeirri niðurstöðu að það væri gjöfulla og sniðugra að fara í ljósmyndun en að púla í 3-4 klst á dag við lestur á heimspekipælingum á ensku með viðeigandi flóknum hugtökum og orðaforða. Eins og staðan er núna þá hefði ég þurft að taka þessar 3-4 klukkustundir af nætursvefni, og þá kaus ég heldur að flippa og fara í ljósmyndunina, en lokaverkefnið í henni er 60 mynda albúm með lit- og svarthvítum myndum sem ég hef sjálf tekið og framkallað.
Ljósmyndakennarinn er líka vel nettur, Ástrali sem hefur ferðast út um allan heim til að taka myndir, og hefur verið með sýningar í Englandi, Bandaríkjunum, Perú, Frakklandi og Þýskalandi. Gamanaðessu.
Annars er mest lítið að frétta, bara smávegis bilaður fótur, sem olli því að ég gat lítið farið út úr húsi þessa helgina, en ég er búin að fá allskyns smyrsl og læti til að lækna hann, svo að það ætti ekki að verða til vandræða. Það má segja margt slæmt um Kana, en þeir mega eiga það að þeir eru algjör samúðar-búnt, þessar elskur. Tvær amerískar stelpur úr skólanum komu hérna til mín í dag undir formerkjum sjúkraheimsóknar og elduðu fyrir mig "grilled cheese", sem var svo borið fram með svalandi kóka-kóla. Þeir eru svo samkvæmir sjálfum sér, þessir Kanar, það er alveg yndislegt.
Jæja, markaðfræðiritgerð um muninn á framboði/þjónustu/vöruúrvali í Zara og Hermés bíður. Jjibbí jeij. Öll þessi ár í Verzló sem ég fékk aldrei að njóta eru nú að koma til mín. Frábært alveg hreint.
Sunday, February 17, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
hahaha guðrún sóley hæ!
Wúman. Ímeil.
Ég myndi hvern einasta daga skipta heimspeki út fyrir ljósmyndun, theoríu út fyrir praktík - gott hjá þér. Hlakka til að sjá sýninguna eða bókina.
hlutfallslega færri póstar en í fyrstu = þú önnum kafin við að lifa og tapa kúlstigum?
Ég digga þetta.
Farðu vel með þig elsku stelpa svo þú verðir ekki mjög veik í fætinum eða hálsinum, já eða brisinu.
Hahah, Raggi - já, það getur verið að lífið sé aðeins að trufla mig frá bloggskrifum, það er minni frítími núna en fyrstu dagana... :) En ég reyni nú stundum að pása það og skrifa eins og eina bloggfærslu. Takk fyrir peppið, ég var smá efins með ákvörðunina en líst mjög vel á ljósmyndunina og held að þetta hafi ekki verið svo vitlaust. Þú verður fyrsti maður til að sjá myndabókina þegar ég kem heim! Bið að heilsa öllu genginu á Eyrarbakka!
Hermés?! Get ég aðstoðað?
Hermés hefur náttúrulega alltaf verið þín sérgrein, Oddur - þarf smávegis upplýsingar um snið og efnisnotkun, hringi áreiðanlega í þig. Þegar maður hugsar um Odd Þorra kemur tvennt upp í hugann; salatpokar og silkiskyrtur frá Hermés. Gotta love it.
Post a Comment