Þriðja helgin á enda hér í Barcelona. Uppgötvanir helgarinnar:
Fös: Það er ekki öll geðveikin eins.
Lau: : Íranir kunna að skemmta sér betur en flestar þjóðir.
Sun: Það er bakarí hér sem heitir BarcelonaReykjavík. Þetta bakarí selur lífræn súrdeigsbrauð, glúten- og sykurlaus.
Og eins og proper Íslendingur í útlöndum iða ég í skinninu af tilhlökkun eftir að fara þangað og athuga hvort ég geti pantað mér grjótharðan fjölkorna speltklump á ástkæra ylhýra.
www.barcelonareykjavik.com ef þið hafið áhuga.
Sunday, February 10, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
ég tékkaði á síðunni...ég er brauðnörd...er það hægt?
Hahahaha, snilli. Það er töff að vera brauðnörd, töffaðra en að vera til dæmis bílanörd eða prjónanörd. High five, Þóra!
Post a Comment