Jæja, nú get ég sagt frá svolitlu sem síðustu dagar hafa að stóru leyti snúist um...
Í fyrsta Alþjóðleg-markaðsfræði tímanum sagði kennarinn okkur að hann hygðist bjóða einum einstaklingi úr hópi nemenda sinna borgaða lærlingsstöðu við fyrirtækið sitt á meðan á dvölinni hér í Barcelona stendur. Hann sagði svo áhugasömum að senda inn ferilskrá. Að gamni fór ég heim og þýddi gamla góða sívíið yfir á ensku og mætti með það í næsta tíma. Ég hafði afar litlar væntingar gagnvart þessu gríni og þær urðu að engu þegar sætisfélagi minn í tíma, Lori Higginbotham sagði mér að þetta væri áreiðanlega bara fyrir amerísku nemendurna. (99% bekkjarins). En viti menn, Grussan var ein af 8 sem komst í viðtal. Eins og flestir vita finnst mér fátt jafn skemmtilegt og að mæta í starfsviðtöl, (:S) sérstaklega eins og þetta, klukkutíma löng grillun um tungumálakunnáttu mína, starfsreynslu og áhugamál. En allavega, heppnin var með mér því að áðan var hringt í mig og mér boðin vinnan :D Jeij! Þetta er semsagt eitthvað svona branch út frá aðalbankanum hérna í Barcelona, fasteignafyrirtæki sem á um 100 íbúðir í borginni og er sífellt að kaupa og selja íbúðir og leigja út í skammtímaleigu til útlendinga. Mitt hlutverk verður að vinna að markaðáætlun fyrirtæksins fyrir árin 2008 - 09 og líka að vinna beisikklí sem fasteignasali, þ.e.a.s. ferðast með útlendinga (hugsanlega leigjendur) um Barcelona, sýna þeim íbúðirnar, kynna þá fyrir umhverfinu ofl ofl. Eins og lesendur sjá er smávegis ofmat á hæfni minni í gangi hjá stjórnendum þessa fyrirtækis en ég ætla bara að reyna að gera mitt besta, þetta yrði ekki í fyrsta skipti sem ég fæ vinnu sem ég á tæplega skilið :)
Eníveis, vildi bara deila þessu með ykkur - ég er í svo húrrandi góðu skapi yfir þessu! Fæ að hitta fullt af skemmtilegu fólki og æfa tungumálakunnáttuna á hundrað! Gotta love it!
Tuesday, February 5, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
15 comments:
Góðan daginn vinkona :O
Þú ert rosaleg!
Gangi þér vel með þetta:**
svo myndi maður ekki hata smá barcelona frí grrr
kv.sófus
til hamingju með þetta beibi!
kv. Lena
Þú ert náttúrulega snillingur Grussa mín, kemur manni ekki á óvart að þú hafir nælt þér í þessa vinnu ;)
Þú átt án efa eftir að standa þig vel!
Tek svo undir með Soffu, væri æði að kíkja í frí til Barcelona til þín.
En gangi þér vel með allt saman.
Knús og kossar
Hildur Helga
Wá þokkalega stelpa! Til hamingju!
Mikið er ég stolt af þér!
Hætta þessu hógværðarbulli svo.
Og hei ég sendi þér bréf í gær...svolítið steikt að vísu...klukkan var orðin svo margt.
Ástarkveðjur
Arngunnur
P.S. Mundu svo að vera dugleg að drekka kaffi. Mmm ég elska kaffi.
Það er ekkert annað. Maður segir ekki nei við svona tækifæri! Til lukku.
Til hamingju með nýju vinnuna!
Hæ Guðrún
Gaman að fá að fylgjast með þér.
Þetta eru greinilega góðir mannþekkjarar. Finnst ekkert skrítið að þú hafir heillað þá uppúr skónum.
Gangi þér rosalega vel!
kv.
Berglind á starfsmannasviði LÍ
Vinna sem þú átt tæplega skilið?? Ég myndi nú frekar segja að þeir séu heppnir að fá þig, eins og við :) Til hamingju! Gaman að fylgjast með þér hérna.
Kveðja, Ingibjörg í Landsbankanum
Vá allt í blússandi blóma. Ótrúlega flott hjá þér og sammála síðasta ræðumanni henni Ingibjörgu, þeir eru sko heppnir að fá þig!!! Til hamingju með þetta! Bestu kveðjur, Bergdís
Þeir eru greinilega með mjög heilbrigða dómgreind í Barcelona. Þú rúllar þessu upp og verður orðin spænsk fasteignadrottning eftir smá tíma. - Viljum samt helst að þú komir aftur til Íslands einhverntímann. - Líst vel á að fara með Ómari og fjölskyldu í frí til þín - bíð eftir að hann bjóði þetta formlega. Gangi þér vel með allt saman.
Kveðja,
Halla
Frábært!! Við biðjum áfram :-) Bið svo að heilsa Mme Hickupbottom. En í alvöru, mjög spennandi breik sem reynir örugglega á allt sem í þér ER.
Við á BERGI fylgjumst spennt með frásögnum af frontinum...
Raggi
Þú rúllar greinilega upp öllum atvinnuviðtölum sem þú ferð í :-)
Gangi þér vel - þú ferð létt með þetta!
Kv.
Bergþóra í Landsbankanum
BEIBÍ BEIBÍ! mín bara komin með djobb og læti! innilega hamingjuóskir með það, þú ert að standa þig eins og hetja! eða ætti ég að segja "jétia"!!
lovjú long and smúth
tu amor para siempre
sandriño cervezas hija de rehén
(vá manstu rehén? ég var búin að gleyma því)
Jih, minn eini!!!! Þú ert ofurkvendi. Það verður ekki tekið af þér. Ég er að rifna úr stolti. Sakna þín hræðilega mikið samt og er alltaf næstum því búin að hringja bjöllunni heima hjá þér.þegar ég átti mig á því að þú ert ekkert þar.
Ég er búin að gera hina fleygu setningu RIse above it að slagorðin mínu.
Ég kem.
Koss á kinn.
þín thelma
Post a Comment