Guðrún Sóley Gestsdóttir, hvenær muntu hætta að læra undir próf á næturnar?
Jafnvel í öðru landi, án kaffivélar og símabands tekst mér samt að sitja hér klukkan 4 og lesa síðustu orðin eftir Orwell fyrir Skapandi-skrifa prófið á morgun. Alnáttungur í Barcelona er nákvæmlega jafn ógeðfelldur og alnáttungur á Íslandi.
Hvar er Toby S. Herman þegar maður þarf á henni að halda? Hefði betur heimsótt hana á meðan ég var enn í MR, þetta lofar ekki góðu fyrir framtíðarháskólanám.
Góða nótt!
8 comments:
Sæl, Guðrún Sóley!
Gaman að fylgjast með ævintýrum þínum í Katalóníu ... þetta virðist heljarinnar fjör allt saman og þú munt snúa sigld til baka - alveg hreint frábært. Ég vil einnig óska þér til hamingju með starfið, þetta var þér líkt. Ég sá líka að þú ert búin að vera að wörka tanið ... ég hlakka til að sjá þig súkkulaðibrúna þegar þú kemur aftur.
Svo vil ég að lokum þakka þér fyrir að bjóða mér í kveðjupartíið.
Bestu kveðjur frá Fróni,
Ívar Schram
Ávallt beittur, Ívar Schram! Þér hefði leiðst í kveðjupartýinu, félagsskapur fyrir neðan þína virðingu, aðallega menningarsnauð leikskólabörn, engir virðulegir lögfræðinemar úr HR.
Gaman að heyra frá þér annars, vonandi ertu að skemmta þér vel í löffaranum, efast ekki um að þú sért að brillera.
Skora á þig í tankeppni, þú ert án efa brúnasti rauðhærði maður sem ég hef á ævi minni kynnst, og með aðstoð ljósabekkjanna í HR muntu eiga góðan séns á móti mér ;)
Hafðu það gott, og skilaðu kveðju til Jordan, félaga míns. Sakna hans mikið.
þegar ég sá tímasetninguna á þessari mynd fór ég að hugsa geðveikt mikið
ég get ímyndað mér að þú hafir fengið frí í tíma eftir hádegishlé og notað hann til þess að læra undir enska leskafla.
lúði
Vá! Fáránlega 100% rétt hjá þér, Sandra Barilli! Feitt prik í kladdann fyrir yfirnáttúrulega ályktunarhæfni!
¡Y no soy lúði, soy anarkista!
úff þvílík vonbrigði! Hélt að þetta væri mynd af þér í spænskri skólastofu þar til ég sá glitta í kunnuglegt lið þarna bak við þig... Ég bíð nefnilega spennt eftir myndum frá ævintýrum þínum.
Hah, hætt í heimspekinni.. þannig að ég vann svona semi veðmálið sem þú lést mig tapa?!!
Haha, já -heldur betur Sigga, og ég skipti náttla bara fyrir þig! Upp með budduna, Steini!
Ert þú ekki annars á leiðinni á flakk, kylling? Og ekki bara hvaða flakk sem er heldur spænskumælandi flakk? Endilega láttu mig vita af ævintýrum þínum og hvort leið þín mun liggja í gegnum Spán á einhverjum tímapunkti... ;)
Finnst að þú ættir að endurlífga Diskinn svo að fólk geti fylgst með þér... Það er trendið, Sigríður Gyða.
Og Gugga - ég veit að þetta myndaleysi er gjörsamlega út í hött, en ég er enn snúrulaus og allslaus hér, sem mun breytast þegar mammsla kemur í næstu viku... Úje, þá get ég loksins hætt að pósta gúgl-myndum og myndum úr og 4. bekk :)
I owe you one eftir allan eðalinn á ugglumyndasíðunni í gegnum árin!
hæ sólarvinkona.
mallorca verður sko eitthvað.
heldur allavega lífinu í mér þessa dagana.
skoðaði meira að segja bikiní á vs síðunni í dag, þá er maður kominn í gírinn.
sjæse
Post a Comment