
Halló halló allir! Ég get ekki útskýrt hneykslanlega fjarveru mína frá bloggskrifum síðustu daga með öðru en að það hafi einfaldlega verið svo ótrúlega gaman og mikið að gera í lífinu að ég fann ekki tíma. En nú er von á betri bloggtíð því að gleðin hefur dempast örlítið eftir að erkisnillingurinn hún Ágústa fór heim í gær. Það var yndislegt að hafa hana hér, við lékum túrista í heila viku og gerðum fáránlega margt. Til að hafa þessa færslu ekki óþægilega langa kemur hér snaggaraleg upptalning á því sem við gerðum:
* Fórum í heilsdags sveitaferð með skólanum mínum og skoðuðum ótrúlega fallega náttúru, gömul eldfjöll og fórum í fjallgöngu og hestavagnsferð.
* Löbbuðum út um alla Barcelona, Römblurnar, ströndina, Barrió Gótico, El Born og Eixample, Ágústa verslaði sér ýmsar munaðarvörur og ég verslaði mér ís.
* Tókum sælkerann á þetta og uppgötvuðum einhverja nettustu veitingastaði Barcelona.
* Fórum í Erasmus partý og Íranska afmælisveislu, hvort tveggja mjög skemmtilegt.
* Hittum Kötlu, systur Klængs, sem er með eindæmum sæt og indæl.
Ójá, kæru lesendur, þessi vika var frábær og mér þótti mjög leiðinlegt að kveðja Ágústu á flugvellinum. Þar hitti ég samt foreldra hans Magga, sem voru helhress eftir skyndihelgarferð til Barcelóna. Það var rosa gaman að spjalla við þau, þessi hjón eru jafn frábær og afsprengi þeirra.
Nú er von á myndavélasnúrunni í express pósti, Sé þessa snúru í hillingum, það verður stórkostlegt að geta loksins birt myndir á þessu bloggi, klárað miðannarverkefnið í ljósmyndun og sent vinum og vandamönnum myndir í e-maili.
Komu snúrunnar skal fagnað með kaffibolla og kannski eins og einu Bueno úr sjálfsalanum í skólanum :)
Vonandi hafa allir það gott, vil ítreka hvað mér finnst gaman að lesa allar skemmtilegu athugasemdirnar frá ykkur, Nóbels-vinir mínir.
Kys&Kram!
2 comments:
Loksins! Ég var farin að hafa virkilegar áhyggjur.
En ekki lengur, ónei!
Ég er allt of þreytt til að koma með eitthvað hnyttið núna, það verður að bíða betri tíma.
En skemmtilegt. Ég hlakka til að sjá myndir!
Post a Comment