Sunday, March 9, 2008

Gadjo


Jæja, enn ein helgin að baki, þessi var alveg á topp þremur!

Í gær fór ég með Norbert af efri hæðinni í strandgöngu, sem varð svo að göngumaraþoni. Við gengum alla strandlengjuna í glampandi sól og hita, náði ágætisbeistani fyrir komandi mánuði :) Við hittum hóp af Ítölum sem voru að njóta síðustu klukkustundanna hér í Barcelona áður en þeir fóru aftur til Rómar. Ójá. Þar gat ég stært mig af eina orðinu sem orðinu sem ég kann á ítölsku fyrir utan matartengundir, þökk sé Söndru Barilli. Þið megið giska hvaða orð þetta var, heyrðist ófáum sinnum í skólastofu 6-A í fyrra.

Svo sáum við óvænt læv tónleika á ströndinni, sem var ótrúlega mikið stuð, bandið samanstóð af 7 manns, þar á meðal básúnu- klarinett- og saxófónleikara, og þau spiluðu svona balkan-stuð-dans-latínó blöndu einhverja. Við sátum þarna á ströndinni og hlustuðum og dönsuðum í einn og hálfan tíma í sólinni, þetta var yndislegt. Ég var ekkert smá hrifin af þessu bandi, hef sjaldan séð eina sveit halda uppi jafn miklu stuði, og endaði á því að kaupa mér einn disk með þeim - þið getið séð þau hér: http://www.gadjomusica.com

og heyrt í þeim hér : http://www.myspace.com/gadjomusica

Svo var enn eitt matarboðið hérna í Carrer D'Aragó í gærkvöldi, óvænt afmælispartý fyrir vinkonu hennar Laurence...
Laurance bauð upp á gourmet pizzur með ostum og hráskinku ammiNAMM, það var frábært! Fólk sat hér og borðaði og drakk og skemmti sér fram undir morgun, en ég dró mig í hlé upp úr miðnætti og reyndi að læra, sem gekk takmarkað, en bætti það upp með lærdómi í algjörum frið og ró í morgun, aðrir íbúar íbúðarinnar fóru ekki á fætur fyrr en um 3 leytið.

Jebbsa - svo er það bara ískrandi fínt páskafrí í næstu viku eftir prófin úúújeeeee! Hlakka til!

5 comments:

Halla Oddný said...

Alltaf sígildur, alltaf Norbert.

Anonymous said...

Hljómar unaðslega. Frostið hér er líka algjör unaður. Reyndar að öllu gamni slepptu var yndislegt á Íslandi í dag. Voða fallegt veður og ástin sveif yfir vötnunum.

Halla said...

Þetta hefur allavega ekki verið ónæs, miðað við lýsingar.

Guðrún Sóley said...

Thid tvöföldu-samhljóða-vinkonur, ég elska ykkur!

Anonymous said...

grussa tjékk yo email!
var að senda þér svar sem mun vonandi gleðja þig!!!