Viðburðarík helgi að baki, ætla að reyna að lýsa þessu í stuttu máli, þessar færslur mínar með myndum eru algjörar maraþonfærslur, ég veit ekki hvort nokkur maður hefur athygli í að lesa þetta allt...
Fös: Fór í fjallgöngu upp á Montjuic-fjall með þremur vinkonum úr skólanum. Að göngunni lokinni fórum við á San-Antoni markaðinn, þaðan heim til mín og fengum okkur síðdegis-salat. Um kvöldið fórum við svo út á hinn frábæra Sish-bar, sem er með frábærasta veggfóðri í Barcelona. Þaðan fórum við svo í Erasmus-partý, þar sem ég fékk tækifæri til að tala dönsku og bulla svolítið á þýsku.
Lau: Matarboð heima á Carrer d'Aragó. Við Laurance elduðum bull-pasta-ofnrétt, og svo tók Amir við með íranska tónlist og danskennslu í þjóðlegum dönsum. Svo fórum við á Salsa-staðinn í götunni okkar, sem er frááábær staður, þar sem fólk virkilega kemur til að dansa, ég held að ég hafi aldrei dansað jafn mikið á einu kvöldi. Er yfir mig hrifin af salsa og er að spá í að fara í nokkra tíma með Amir áður en ég fer heim.
Sun: Skrapp með Norbert af efri hæðinni niður á strönd, en þá fór að hellirigna, þannig að við fórum í Parc de la Ciutadella í staðinn, sem er flottasti almenningsgarður Barcelona að mínu mati. Þar var hippahátíð í bullandi gangi, og hugleiðslubásar, nuddbásar og frelsum-Tíbet-básar í tugatali.
Besta salat í heimi : Ferskt spínat, geitaostur, sæt, safarík jarðaber, furuhnetur og smávegis balsamik og ólífuolía. Nýja æðið mitt.
Brittany frá Kaliforníu og Júlía frá Ísrael seinna um kvöldið.
Krúttin atarna.
Hressar og yfirlýstar.
Jackiepie og Brittany.
Erasmus-grínið. Kendra er einstaklega hrifin af þessum gleraugum, eins og sjá má.
...það er Emily líka.
Þessir voru allir af vilja gerðir að skilja 3-ára-barns þýskuna mína.
Andreas var þjóð sinni, Danmörku, til sóma.
Hressar, stelpur. Þarna má sjá erkisnillinginn og Danann (oftast samasemmerki þarna á milli), Önnu K, sem er ein af bestu vinkonum mínum hér.
Matarboðið á laugardeginum, spænska var tungumál kvöldsins.
Stuð heima í stofu, Amir í blússandi sveiflu.
Sunnudagsgöngutúr - Earth Festival í Parc de la Ciutadella.
Gran Vía á leiðinni heim, þarna er maður eitthvað að reyna fyrir ljósmyndakúrsinn.
Já, þannig var nú það. Næstu helgi förum við svo til San Sebastian og Bilbao, og ég hlakka ekki lítið til. Annars er ég aðeins farin að átta mig á því hversu stutt er eftir af dvölinni hér, og er ekki alveg nógu sátt með hversu tíminn er fljótur að líða. Vil helst að þetta taki aldrei enda þó svo að ég sakni auðvitað vina minna og fjölskyldu til tunglsins. En það eina sem hægt er að gera í stöðunni er að njóta hverrar mínútu, og það ætla ég svo sannarlega að gera.
Hafið það gott, krullur...
3 comments:
Úffa ja, njóta hverrar mínútu. Það er málið.
bið að heilsa bilbao*
Sé að ljósmyndakúrsinn er farinn að síast inn, búin að læra orð eins og „yfirlýstur“. Mjög gott.
Post a Comment