Jæja skonsur,
Eins og hefur komið fram hér á síðunni komu pabbi og mamma að heimsækja mig, og mér finnst við hæfi að birta hér nokkrar myndir af þeim þar sem þetta er einstakt heiðursfólk. Ég var ofsalega hamingjusöm yfir því að fá þau hingað og skokkaði með þau út um alla borg, fór með þau á tekknóbari og vændishús, og þau skemmtu sér betur en nokkru sinni fyrr, gömlu hjónin.
Ástkær móðir mín í góðum fílíng með kaffibolla á Römblunni.

Jeij! Skruppum til strandbæjarins Sitges í dagsferð, og eins og sjá má var það hörkugaman.
Önnur Hvar-er-Valli-mynd, mamma tók þessa fyrir framan eina af skólabyggingunum, þarna fer ég í ljósmynda- og spænskutíma.

Hress með hummus.
Pabbi mættur, himinlifandi í Parc de la Ciutadella, sem er flottasti garðurinn í borginni.
Pabbi í háskólagarðinum hjá UB, þar sem maður hefur marga samlokuna snætt og mörg góð samtölin átt.
Skemmtilega hel-mygluð á kaffihúsinu á toppi Montjuic-fjalls, þar sem má finna útsýni yfir alla borgina.

Önnur mynd frá Sitges, sem er ótrúlega fallegur bær, jafnvel í nettu óveðri eins og var þennan dag.
Ég vil líka nota tækifærið til að óska Bergdísi og Kristjáni með glænýja krakkalinginn! Þau eignuðust litla stelpu þann 14. apríl. Skvísan atarna mun að sjálfsögðu verða skírð Ellý í höfuðið á ástkæra bankanum sem móðirin vinnur hjá. (L.Í) (eeeeeeeehehehehehe, ehemm)
TIL LYKKE til hjónakornanna!
Jæja, þarf að hefjast handa við smávegis ritgerðarskrif og annað skemmtilegt - hafið það gott þangað til næst!
2 comments:
Frábærar myndir! Þau er svo voða voða sæt gömlu hjúin. Og þú líka. Gamangaman.
Jæja, farðu nú að skrifa mér, eða ég tala aldrei við þig aftur. Nei djók. Ef þú ert of góð til að skrifa mér þá hittumst við bara on the flipside.
Æ, þið eruð svo liberal... farið saman á vændishús og svona...
- skemmtilegar myndir -
Kveðjur af Bakken Raggi ;-)
Post a Comment