Þetta er orðið svolítið glory-hallelúja blogg hjá mér, og það getur verið að þið séuð orðin þreytt á því en ég bara verð að fá að skella inn einni svoleiðis færslu í viðbót... því að MADRÍD VAR EFFIN' MÖGNUÐ!!! Við Kendra flugum þangað eldsnemma á föstudagsmorgun og komum svo aftur til Barce í dag, sunnudag. Ég held að ég geti með sanni sagt að þetta hafi verið besta helgin í allri minni Spánardvöl. Við tókum maraþonheimsóknir á listasöfnin Prado, Thyssen-Bornemisza og Reina-Sofia (hvar Ólafur Elíasson er með varanlegt herbergi undir eitt verka sinna... Frekar nett, ha :) og fórum svo í Spænsku konungshöllina, með 2000 gull-og gimsteinainnréttuðum herbergjum og útsýni yfir borgina. Sjitt, hvað þetta var magnað. Á milli þess löbbuðum við svo um borgina í sólskini og hita, tókum pikknikk/blund í Buen Retiro garðinum og borðuðum tapas. Svona á lífið að vera.
Fotos:
Ferðafélaginn: Kendra Strouf frá New York. Elskana.
Thyssen-Bornemisza var tekið milli klukkan 8-12 með hjálp frá tvöföldum espresso. Magnað safn, hápunkturinn var að mínu mati portrettmynd af kokki George Washington eftir Stuart Gilbert.
Reina Sofia safnið. Það koma að því að maður sæi Guernica með eigin augum. Svo var ekki laust við að maður fylltist smávegis plebbalegu þjóðarstolti þegar ég sá að Ólafur Elíasson var þarna með sér sýningarherbergi.
Konungshöllin. Svo yfirdrifið að maður fékk klígju undir það síðasta yfir öllum gullbryddingunum, kristalsljósakrónum og marmaragólfunum.
Kendra með útsýnið frá konuhngshöllinni í bakgrunni.
Hér má sjá aðra varíasjón af myndinni að ofan, aðeins með annarri manneskju í forgrunni. Gaman að þessu.
Rákumst á einhvers konar eldri-borgarar-klæða-sig-í-búninga skrúðgöngu, sem var snilldin ein. Sjáið bara hvað þau eru sæt!
Vei!
Madríd er einhver fallegasta borg sem ég hef komið til. Að labba um að kvöldi til var sérlega indælt, allt upplýst og fallegt, eins og til dæmis póstmiðstöðin hér að ofan.
Semsagt - næstsíðasta helgin hér var sérlega vel heppnuð. Mun pottþétt fara aftur til Madrídar í náinni framtíð, það er alveg ljóst. Í dag er það svo ströndin og tónleikar með Gadjo í kvöld. Sweet!
3 comments:
Ó guðs míns rún, ó rún míns guðs. Þetta var nú gleðileg færsla að lesa. Ég er hér í kjallara sem lyktar eins og piss, því laufin eru farin að rotna á neðanjarðarsvölunum okkar. Rottan lætur líka á sér kræla milli þilja og skapar sérstaka stemmningu á nóttunni. Ég hef nýlega kynnst ótrúlegum manngerðum sem ég hlakka til að segja þér frá. Ég hlakka líka til að koma til þín í sangríu og gazpacho og liggja á pallinum þínum. Lifðu heil í viku í viðbót.
Þín Halla
Weeee. Ég hlakka svoo mikið til að sjá þig.
Mikið svakalega ertu alltaf glöð! Alltaf gaman.....
Post a Comment