Thursday, January 17, 2008

Uff...


Fyrir þá fáu sem ekki vita er ég, Guðrún Sóley, enn á Íslandi. Þökk sé hinni stórkostlegu Lauru Burkett, vinkonu minni hjá útlendingadeild UB, þá fór ég ekki þann 15, heldur mun ég ekki yfirgefa klakann fyrr en næsta miðvikudag. Þessir Spánverjar eru svo asskoti flippaðir að þeir eru ekkert að veita leyfi fyrir nýjum stúdentaíbúðum fyrr talsvert seinna en samið var um, þannig að ég fæ að horfa á Deitæm TV og strauja í fáeina daga í viðbót. Reyndar veitir mér svosem ekki af undirbúningstímanum, en samt, pínu antíklímax að vera ekki farin enn, auk þess sem ég hefði vel getað unnið pínuponsu lengur.

En ég LOFA að fara næsta miðvikudag, folks. Engar áhyggjur.

Ég er búin að setja inn þrjú ný myndaalbúm - Jafningjafræðslan og afmælið mitt '06 og frá busadeginum í 6. bekk. Húrra fyrir því, klappklapp og jibbíjei.

Til næste gang, kys og kram.

7 comments:

Anonymous said...

talandi um aðskilnaðarkvíða.
þessar myndir græta mig.
þvílíkt yndi sem MR var..
hlakka til að sjá þig á lau kjútípæja.
xxsoffa

p.s. vá manstu þýsku á mánu-og miðvikudagsmorgnum, svo gott í minningunni!

Anonymous said...

aedisleg myndasida hja ther gudrun soley! gaman ad sja hvad vid erum oll buin ad breytast, va...
hafdu thad gott a Spani
Herdis

Anonymous said...

Mjási. Það var svo gaman í gær!

Setja svo fleiri myndir. Útilegu og eitthvað svona. Ha.

Halla said...

Mjási. Hahaha. Haha það er fyndið. Minnir mig á Ásrúnu.
Allavega.

Þessi var rosaleg, í alvöru, virkilega rosaleg. Semi sjokki hérna.

Anonymous said...

hafðu það gott elsku snúllan, we´ll claro stayin touch:**
xx

Anonymous said...

búhúúú engin grussa á íslandi.

Halla Oddný said...

Jájá, það vita allir að þú ætlar bara að liggja í því í Köntríbæ á Skagaströnd og þú ert ekkert að fara til barþelóna. Snap out of it, komdu út úr skápnum með þetta fáránlega samband þitt við Hallbjörn Hjartarson. Það er kominn tími til að binda enda á þennan ógeðslega blekkingaleik.