ÉG ELSKA LÍFIÐ! Ég sit hér í nýju íbúðinni minni og hún er frábær! Er í risastóru herbergi með svalir, og íbúðin er mjög falleg og björt. Jeij! Ég er víst með einum Belga og DANA í herbergi, en þau eru ekki heima. Þeir sem þekkja mig vita að fátt gleður mig jafn mikið og að umgangast Dani og heyra dönsku talaða þannig að ég er í sjöunda himni. Svo er ég komin með týnda farangurinn og allt.
Nú spyrja skörpu lesendur þessarar síðu sig hvernig ég get verið að bogga hér í því sem átti að vera internet-laus íbúð! En ónei, hér er snar-internet sem virkar svona líka glimrandi.
Vildi bara koma með smá jibbí-fréttir.
Kem svo væntanlega með frekari lýsingar í kvöld þegar ég er búin að hitta Belgann og Danann. Afar spennandi.
Thursday, January 24, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Hljómar unaðslega. Ég öfunda þig mega.
Wá wá æðislegt! Gott að heyra fréttir. Ég var farin að hafa áhyggjur. Heyrðu og Dani maður! Er það strákur? Á ég ekki að giftast honum?
Heyrðu og Alfreð Gíslason bara hættur sem landsliðsþjálfari í handbolta!
Gott að heyra að þú ert heil á húfi elskan mín, týpískt af þér samt að týna farangrinum og klína því svo á flugfélagið ;)
Vei. Gaman. Vei. Dani. Já. Vei vei. Net. Vei. Svalir. Vei. Farangur. Vibbívei. E-mail? Júhú. Vei vei. Bless. Uhu. Brátt aftur. Vei.
Geðveikt. Internet tenging inni í íbúðinni. Í loftinu. Dani, það er geðveikt. Næsta blogg verður að vera algjört grunnsálgreiningarblogg á þessum meðsofendum, uhh..ja herbergisfélögum. Gaman að það er gaman. En já þessir ameríkanar, bara ditsa þá. Hvað verðuru svo lengi þarna? Er þetta vika eða tvær?
vá! hljómar mega. væri til í að vera í barcelona, með geðveika íbúð, sól og heitan dana(geri ráð fyrir að daninn sé heitur gaur)
xxsoffa
Dani, Írani, tómeitó tómató. Meira blogg, ég þoli ekki þessa óvissu um afdrif þín síðustu tvo daga.
Post a Comment