
Vá!
Ég var að koma heim úr skoðunarleiðangri með nokkrum krökkum úr skólanum í nettasta hverfi Barcelona-borgar - El Born. Ég sver að þetta er algjört himnaríki, þarna eru aragrúi af litlum götum sem hlykkjast um hverfið, fallega upplýstar, með flottustu fata- og skóbúðum sem ég hef séð, Picasso-safninu, litlum kaffihúsum, tapasbörum, cava-börum, ísbúðum og öllu milli himins og jarðar.
(fyrir tískumeðvitaða lesendur þessarar síðu þá voru þarna á hverju strái búðir sem seldu merki á borð við Henrik Vibskov, Wood Wood, Marjan Pejoski, Bernhard Wilhelm, Fred Perry ofl. ofl. (stalst til að kaupa mér einn geðveikan Wood Wood kjól, jeij!))
Hvern einasta dag í þessari borg sé ég eitthvað sem heillar mig upp úr skónum, ég get ekki lýst því hvað þessi borg er stórfengleg. Mig langar aldrei að fara héðan.
Vinsamleg tilmæli til ástkærrar fjölskyldu og vina um að flytja hingað hið snarasta...
Svo lærði ég að búa til almennilega Gazpacho súpu í dag, og þvílíkt gúmmelaði! Nú er ég komin upp á lag með að elda bæða spænska tortillu og Gazpacho, er að safna skills í að halda almennilegt spænskt matarboð þegar (ef) ég kem heim... :)
Hafið það gott, bli' lykkelig og ekki gleyma að fagna afmælisbarni dagsins: hjartaknúsaranum og textasmið aldarinnar; Tiziano Ferro. Hver getur gleymt ógleymanlegum slögurum á borð við Perdono og ... Perdono (English version)! Klassík!
10 comments:
æ lov him skiluru
El born hljómar ótrúlega vel. Væri til í að komast þangað.
Vá, gaman gaman. Æðisleg saga líka hér fyrir neðan, þessi ameríkani er maður að mínu skapi. En heyrðu, komdu á skæp núna. Ókí. Bæb.
myndasíðan verður virk, engar áhyggjur. tek myndir þegar ég fer að hitta fólk...almennilega.
Sem verður um helgina, þ.a. djúsí myndir e helgi girl.
Goða skemmtun áfram :)
Hæ Guðrún Sóley! Gaman að heyra að þú skemmtir þér vel, þetta hljómar allavega ótrúlega vel! Skemmtu þér æðislega y nos vemos en Islandia!
beibí.
nú bið ég þig um tvo hluti.
a) Kíktu á glingrið. Þar er mynd af Höllu og þér í anda.
b) Bloggaðu
knús
Já! Bloggaðu! Og farðu að koma þessari myndavél í gagnið, ég vil sjá myndir frá Barcelona! Og svaraðu líka bréfinu mínu þegar þú getur. :)
farðu að blogga kona og snilld að þú hafir hitt litningana mína í barcelona...
Þessi færsla er orðin of gömul. Vinsamlegast setjið inn nýja.
Virðingarfyllst,
Halla Oddný Magnúsdóttir
hæ elsku vinkona mín
ég hef eitt og jafnvel tvö augu á þér hér í Amsterdam og hugsa til þín!
Heyrðu, Barcelona ferð er alveg snarlega málið í apríl...langaði bara að spyrja þig hvenar og hvort það myndi henta þér?
farðu vel með þig á römblunni!
ást og friður og siesta
Post a Comment