
Í dag mætti fjórði meðleigjandinn á svæðið - kólumbíska daman. Hún er á að giska 25, 26 og ekki er hún hingað komin til að braska með kókaín, ónei, þvert á móti er hún hingað komin til að taka master í barnalækningum við Háskólann. Jätte kul! Hún sagði mér hvað hún heitir en ég bara man það ekki akkúrat núna, kem með þær fréttir ferskar hingað inn um leið og ég kemst að því... :) Hún talar þessa líka glimrandi fínu spænsku, hæga og skýra, þannig að við getum átt í frábærum samræðum um kaffi, leigusalann og þvottavélina...
Uppgötvaði eitt hverfi í viðbót í kvöld, gekk Gracia þvert og endilangt, og það olli ekki vonbrigðum. Smávegis hippabragur á því, mikið af sætum tehúsum og Fair trade búðum og veitingastaðir frá öllum heimshornum, til dæmis var þarna egypskur staður sem mér þætti gaman að prófa.
Annars eru miðannarpróf í næstu viku og mun helgin fara í að læra undir þau, þó svo að ég tími ekki að vera inni, er að hugsa um að skella mér í Parc Guell og eyða deginum í lestur þar. Það er miklu betra en að húka inni í svona þrusugóðu veðri. Þegar miðannarprófum lýkur tekur svo við stórkostlegt páskafrí með heimsókn frá mömmu... Jeij! Það verður flott að geta aðeins tjillað á fullorðinsstælunum og verið óábyrgt krakkarkrípi á ný. Þó svo að það sé bara í viku, maður getur bara höndlað þessa ellistæla í takmarkaðan tíma.
Annars er ég að skipuleggja ferðalög þessa dagana, er búin að bóka ferð með nokkrum krökkum úr skólanum til San Sebastian og Bilbao í apríl og svo er stefnan sett á París í lok apríl/maí. Villtustu draumarnir snúast svo um að komast til Andorra á skíði... Hver veit? Það er eins með heita loftslagið og ábyrgðina, maður verður að fá frí frá hvoru tveggja endrum og eins...
Snúran lætur bíða eftir sér eins og proper díva... Hlýtur að koma á morgun.
4 comments:
Dásamlegt. Yndislegt. Ekki sem verst. Hér er blautt og ansi kalt á tíðum. En samt alveg gaman.
Hressileg ertu að skella inn annarri færslu. Ég fíla það í botn þegar kvefið situr í mér og ég ligg undir teppi með temixtúruna mína: heitt vatn, hunang, engifer, hvítlaukur og sítróna. Klikkar ekki.
ég trúi ekki að þú hafir séð parc guell!!!!!!
so it's not a myth!
Hæ elsku systir.
Rétt að smella á þig smá línu héðan úr íslenska pre-vorinu. Gaman að heyra hvað allt er frábært. Hafðu það súper-gott.
Hrólfur.
Post a Comment