Tuesday, April 29, 2008

Þá er ég komin heim frá San Sebastian og Bilbao. Helgin var hreint út sagt stórkostleg.
Eyddum heilsum degi á ströndinni í San Sebastian, sem er ofurkrúttlegur strandabær með sterkum frönskum áhrifum, enda staðsettur nánast alveg við landamærin. 
Svo fórum við á Guggenheim-safnið á sunnudeginum, og ég er eiginlega enn í vímu... Þetta safn vsr svo ótrúlega magnað, ég held að ég hafi verið rúma 4 tíma þarna inni og svo eyddum við hellingstíma í að skoða bygginguna að utan. Þarna var heil hæð undir súrrealisma, þar sem Dalí var auðvitað í aðalhlutverki, svo var bresk list frá öllum tímum, skúlptúrar, gjörningar og allt milli himins og jarðar. Allavega, myndirnar tala sínu máli... :

Bilbao, alls ekki ólaglegur bær.

Kendra, sérlega lagleg.
Kendra og Talia í San Sebastian rétt áður en grillunin mikla hófst.
Kendra beibíkeiks. Þarna má einnig sjá einstaklega myndarlegan herramann til hægri.
Á laugardeginum fór fram Bilbao-maraþonið. Við hlupum að sjálfsögðu með. Hlupum 0,7 km frá hótelinu að kaffihúsinu. (ég er antílópu - föðurfjölskyldu minni til háborinnar skammar!)
Guggenheim lífs míns. 
Jeff-Koons kisi, skúlptúr úr blómum fyrir framan safnið.
Nett, ha?
Ballettbúningar sem Dalí hannaði fyrir spænska dansflokkinn. Magnað alveg hreint.
Jeff Koons með flipp.
Þessi sýningarsalur var án gríns 400 fermetrar, og maður villtist inni í þessu völundarhúsi. 
Fleiri súrrealískir ballettbúningar.... Þetta var síðasta myndin sem ég náði að taka áður en vingjarnlegur safnsstarfsmaður öskraði á mig og vakúmpakkaði myndavélinni minni. Nice.

Það er Íslendinga-aksjón um þessar mundir í Barcelona, Klængur, Kobbi Filipus, Dabbi Sig og föruneyti komu hingað í gærkvöldi, og þau eru í íbúð frá hinu stórkostlega fasteignafyrirtæki Apartment in Barcelona, og svo er Jóhannes Páll væntanlegur frá París eftir nokkrar mínútur, en hann verður hér í íbúðinni. Gamanaðessu, það verður stuð að dusta rykið af íslenskunni ;P

Hafið það gott elsku fólk, 

Kys&Kram

3 comments:

Halla said...

Það sem Salvador Dalí hannaði ekki.. vissir þú að hann hannaði Chupa Chups logoið?

Magnaður karlfjandi.

Anonymous said...

hey! gaman að lesa bloggið þitt.
Ég og mamma erum að koma til barcelona núna í mai... verðum í bæ rétt hjá og planið er að eyða 1-2 nóttum í barce... Mig langar ótrúlega til að hitta þig, væri gaman að kíkja út saman. Verðum líklegast 16eða 17 mai... ertu með email sem við getum skrifast á babe. sendu mér mail á elisabetalma@gmail.com

:)
kv elísabet alma

Anonymous said...

Mitt uppáhalds innan handar allt um kring.