Tuesday, May 6, 2008

Sizzlin'

Hér í Barcelona er farið að hitna allverulega, nú fer hitinn varla niður fyrir 25'c og allt farið að snúast um ströndina, við förum þangað á milli tíma og eftir skóla og um helgar... Jeij... 

Síðasta vika var heldur betur fjörug, Jóhannes Páll Páfi kom í vikulanga heimsókn, við lékum túrista og svo hélt ég matarboð á fimmtudeginum fyrir 11 manna hóp af Íslendingum, Írönum og Ameríkönum. Eftir það lagðist ég svo í heiftarlega flensu, og Jóhannes Páll varð þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá mig í hóstamixtúruvímu, hnerra og snýta mér og almenn ógeðslegheit en tók því eins og hetja, hann grét bara smávegis.

Myndir:


Jóhannes á La Boquería markaðnum, gjörsamlega heltekinn af litadýrðinni.

Fylgdumst með risaútsendingu á fótboltaleik undir berum himni, það var suddalega gaman, jafnvel fyrir antísportista eins og sjálfa mig.
Skelltum okkur út á lífið, Jóhannes og Mitchell sameinuðust í aðdáun sinni á Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Jóhannes og Kendra sameinuðust í aðdáun sinni á ljósmyndaranum.
Sprækur á Placa Catalunya, örfáum sekúndum eftir að þessi mynd var tekin dritaði dúfa á trýnið á honum. 
Fimmtudags-matarboðið, Kobbi Filippus með gangsterataktana á hreinu.
Stoltir fulltrúar íslensku þjóðarinnar. 
Tignarlegur Jóhannes mættur í grillun.
Þessi maður útskrifaðist úr MR. Til hamingju með það Jóhannes.
Datt í gleðina með þessum snigli.
Já, það kostar átök að fljúga þyrlu.

Semsagt, frábær vika hjá mér, fyrir utan þessi suddalega veikindi, en ég fékk heilan lyfjaskáp af amerísku sulli til að ná þessu úr mér. Ætla mér að verða orðin frísk á morgun, en þá er einmitt lokaprófið í markaðsfræði. Svo er restin af lokaprófunum í næstu viku, en ég vil helst ekki ræða það neitt meir, ég vil ekki horfast í augu við það að þessari dvöl sé að ljúka.

Ég setti inn einn myndapakka undir *Myndir*, þetta eru myndir frá fyrstu vikunum hérna úti og meira væntanlegt. 

Svo eru fleiri gestir á leiðinni, glæsimæðgurnar Elísabet Alma og Heiða ætla að kíkja í stutt stopp og svo kemur Oddur Meistari Sigmundsson hingað líka. Fraubeirt!

1 comment:

Anonymous said...

Það er aldeilis gestagangur.