Saturday, May 10, 2008

Madre mía!

Í dag er mæðradagurinn, og að því tilefni finnst mér tilvalið að minnast á að mamma mín er einmitt sú besta móðir sem hægt er að ímynda sér. Hún er fyndin, falleg, klár og skemmtileg og í alla staði yndisleg manneskja, ég er svo stolt af henni!


Elsku mamma, gleðilegan mæðradag, ég vildi að ég gæti verið hjá þér og knúsað þig í tilefni dagsins, en það bíður bara þar til ég kem heim! Hugsa til þín og vona að þú eigir góðan dag!

-Guðrún Sóley

1 comment:

Anonymous said...

Takk elsku stelpan mín. Manni hlýnar um hjartarætur yfir að eiga svona hugsanasama og yndislega stelpu. Það er á hreinu að dagurinn verður yndislegur með svona fallega byrjun.

mamma.