Thursday, April 10, 2008

Skíðaferð lífsins

Skellti mér á skíði síðasta sunnudag með félögum mínum Norbert og Mitchell. Við tókum lest klukkan 06:30 til La Molina skíðasvæðisins, ferðin tók aðeins meira en 2 tíma (kostur nr. 1276 við Barcelona er staðsetningin, það er allt í þægilegri fjarlægð, strendur, náttúra, sveitin, jafnvel skíðasvæði. Gottaloveit.)

Þetta var frábær dagur, ný reynsla að fara á skíði í sól og sumaryl, maður tók tan upp á næsta stig þegar maður lá í sólbaði og skíðaði til skiptis. Kæru börn, leyfum myndunum að tala sínu máli.




Dirección: La Molina

Norbert ávallt glaður, tilbúinn að skíða eins og aldrei fyrr.

Skíðasvæðið var þarna á síðasta séns, eins og sést var ekki mikill snjór eftir.

Norbert & Mitchell ánægðir með lífið.
Hann segist vera módel fyrir Abercrombie&Fitch, þessi, og ekki ætla ég að draga þau orð í efa.
Þarna er ég í Hvar er Valli - leiknum, aðallega vegna takmarkaðrar hæfni Norberts með myndavélina.
Útsýni úr stólalyftunni, yndislegt! 
Norbie og Soley. (hljómar eins og Teletubbies karakterar)

Mitchell Davis, dreyminn á svip að ná sér í smávegis beistan. 


Gotta love men that love dogs.




Mister A&F 2008. 


Útsýni Pútsýni. 

Já, þetta var nú aldeilis skemmtilegt krakkar mínir, en skemmtuninni er hvergi nærri lokið því að á morgun ætlum við Norbert að leigja bíl og halda norður á bóginn í eins dags road-trip, og svo er það ferð með skólanum til Costa Brava um helgina, sem verður ábyggilega nálægt 8 eða 9 á skemmtiskala Guðrúnar. Ójá!

Until then - Kys&Kram

5 comments:

Sandra said...

oh það er svo gaman að sjá myndir af þessu. ég var orðin svo þreytt á að lesa allt sem þú gerðir, nú get ég séð það.
djók, þetta er bara bæði gaman, gott að þú skemmtir þér vel í borg lystisemda lífs og munaðar.
london svitnar niður í samkynhneigðar buxnaskálmarnar í samanburði skiluru.

Anonymous said...

hey þú... viltu taka þessa gæja með þér heim og gefa mér einn!?!?

Gugga Rós said...

æi ég ætlaði að vera sniðug og ósmekkleg en lena stal brandaranum af mér...

Harmsaga said...

Norbert er heitur þó að nafnið hans sé jafn kynþokkalaust og smurostur. Ég treysti á að þó að þú takir hann ekki með heim þá takir þú hann bara hinsegin þarna úti!

Guðrún Sóley said...

Ok, Lena leikur sér nálægt brandara-siðferðislínunni, og Gugga joinar á smekklegan hátt. Svo kemur elskuleg Saga og gjörsamlega valtar yfir línuna og trukkast áfram um 10 km eða so. High five, Saga, það er aldrei of langt gengið í gríni, sérstaklega á svo fjölskyldu-og vinnufélagavænu bloggi. Tusind tak, min kære veninde!