Ég fór ásamt 4 amerískum vinkonum á risatónleika með Balkan/sígaunahljómsveitinni Gadjo, sem voru haldnir í yfirgefnum kastala sem hippar hafa tekið yfir og reka þar listamiðstöð og stunda lífræna grænmetisræktun og almennt frjálsræði. Það tók 2 klst að komast á áfangastað, en við fundum loksins þennan kastala inni í skógi einhvers staðar nyrst í borginni.
Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel, þetta voru tónleikar undir berum himni, mögnuð stemmning með 300 hippum sem drukku hver annan undir borðið með lífrænum bjór og rauðvíni, og svo var spilað og dansað fram á rauða nótt.
Hér koma nokkrar myndir, þrátt fyrir auðvitað hafi myndavélin orðið batteríslaus snemma kvölds... :(
Byrjuðum daginn á brunch á hinum frábæra bar/kaffiteríu Helenu. 3 Michelin stjörnur.
Nei, hættið nú alveg, þið alveg hreint sprengið flippskalann.
Emily Glavely, sérlega glæsileg með dótagleraugun mín.
Þarna blasir það við, kjörlendi hippismans.
Gadjo, gotta love them.
Semsagt, gæðakvöld í alla staði.
Á morgun gerist svo tvennt gleðilegt:
1) Pabbi kemur í heimsókn
2) Ég mun blogga og birta myndir frá skíðaferð sem ég og vinir mínir, Norbie og Mitchell fórum í í dag. Já, góðir gestir, það borgar sig að fylgjast með enda æsispennandi hlutir að gerast á þessu bloggi. Textavarpið hreinlega fölnar í samanburði.
Kveðja,
Guðrún Fling McPingPong
4 comments:
Ég vil sjá klarinettuleikarann.
Jei, loksins fær maður að sjá nokkrar myndir. Gaman :)
flippaða fólk!
Já textavarpið fölnar Guðrún Sóley mín.
Annars ætlaði ég bara að kvitta.
Kveðja Grímur
Post a Comment