Wednesday, April 2, 2008

Can Mas Deu

Jæja,svona aðeins til að lífga upp á bloggið kemur hér eitt highlight síðustu 2 vikna:

Ég fór ásamt 4 amerískum vinkonum á risatónleika með Balkan/sígaunahljómsveitinni Gadjo, sem voru haldnir í yfirgefnum kastala sem hippar hafa tekið yfir og reka þar listamiðstöð og stunda lífræna grænmetisræktun og almennt frjálsræði. Það tók 2 klst að komast á áfangastað, en við fundum loksins þennan kastala inni í skógi einhvers staðar nyrst í borginni.

Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel, þetta voru tónleikar undir berum himni, mögnuð stemmning með 300 hippum sem drukku hver annan undir borðið með lífrænum bjór og rauðvíni, og svo var spilað og dansað fram á rauða nótt.
Hér koma nokkrar myndir, þrátt fyrir auðvitað hafi myndavélin orðið batteríslaus snemma kvölds... :(


Byrjuðum daginn á brunch á hinum frábæra bar/kaffiteríu Helenu. 3 Michelin stjörnur.

Það stenst enginn Jaqcueline snúning þegar kemur að flippi.Þarna eru þær, krúttin fjögur, og eru heimalandi sínu, Bandaríkjum Norður-Ameríku til sóma.



Nei, hættið nú alveg, þið alveg hreint sprengið flippskalann.

Emily Glavely, sérlega glæsileg með dótagleraugun mín.

Þarna blasir það við, kjörlendi hippismans.
Gadjo, gotta love them.


Emily y yo.
Alls konar fólk og Brittany Rittenberry að gera góða hluti í forgrunni.

Þessi ungi maður var með uppistand og glens í lestinni á leiðinni tilbaka og krafðist þess að prófa gleraugun, sem almennt vöktu mikla lukku þetta kvöld. 

Semsagt, gæðakvöld í alla staði.

Á morgun gerist svo tvennt gleðilegt: 
1) Pabbi kemur í heimsókn
2) Ég mun blogga og birta myndir frá skíðaferð sem ég og vinir mínir, Norbie og Mitchell fórum í í dag. Já, góðir gestir, það borgar sig að fylgjast með enda æsispennandi hlutir að gerast á þessu bloggi. Textavarpið hreinlega fölnar í samanburði.
 
Kveðja,

Guðrún Fling McPingPong




4 comments:

Anonymous said...

Ég vil sjá klarinettuleikarann.

Anonymous said...

Jei, loksins fær maður að sjá nokkrar myndir. Gaman :)

Anonymous said...

flippaða fólk!

Anonymous said...

Já textavarpið fölnar Guðrún Sóley mín.

Annars ætlaði ég bara að kvitta.

Kveðja Grímur