Jæja öðlingar, helgin yfirstaðin og kominn tími á skýrslu:
Fös & lau: Ég og Norbert fórum í road trip, flettum upp á skrýtnasta nafninu í ferðahandbókinni og ákváðum að fara til hins stórkostlega bæjar Vic. Þar var gaman að vera og við sáum margt skemmtilegt, eins og til dæmis kirkju-Vic, kastala-Vic, fjall-Vic, ljósmyndasýningu-Vic og besta-kaffibolla-lífs-míns-Vic. (já, kaffibindindið gengur ekkert allt of vel.)
Lau: Fór með krökkunum úr skólanum til Figueres, þar sem Dalí-safnið er. Alveg var það mögnuð safnheimsókn, eyddi hátt í þremur tímum í safninu og hefði vel getað verið lengur. Flýgur beint inn á hinn sívinsæla lista Topp-5 söfn Guðrúnar. Í Figueres fórum við líka á laugardags-útimarkað í skínandi sól og hita og kíktum á kaffihús.
Næst var förinni heitið til Girona, þar sem við kíktum á miðaldaborgina undir styrkri leiðsögn hinnar spænsku valkyrju Mariu Juanitu.
Undir kvöld komum við svo til Girona á hótelið okkar, sem var unaðslegt að öllu leytið. Það sem eftir var af helgi gengum við um svæðið, lágum í sólbaði, fórum út að borða, óðum út í sjó, borðuðum ís og fleira og fleira sem gerði mig ískrandi hamingjusama.
Aðeins of margar myndir hér fyrir neðan:
Yndislegt.
Erin og Brittany eplapæ.
Kendra töffari.
Alls konar fólk sem á það sameiginlegt að vera sérlega skemmtilegt og indælt.
Skelltum okkur í fjallgöngu, þetta er brot af útsýninu.
Útsýnið frá hótelherberginu okkar.
Meira frá fjallgöngunni, maður hefði ekki hatað að dýfa sér þarna ofan í, vantaði bara nokkrar gráður upp á að það hefði verið hægt án þess að fá lungnabólgu og þess konar óþægindi.
Norbert við uppáhaldsiðju sína, klifur.
Háskalegt.
Unaðslegt útsýni en takmarkað unaðslegt myndefni í forgrunni.
Gamla hressa.
Ungi hressi.
Á laugardagskvöldið, seinna um nóttina fylltist þessi strönd af helhressum háskólanemum í leit að hamingju í formi skinny-dipping.
Jacqueline Wahlberg, erkisnillingur.
Rachel frumleg hér í módelstörfum sínum, nýtt tvist á gömlu klassíkina, ,,stúlka með blómvönd".
Stolt á fjallstindinum.
Þetta var semsagt fáránlega skemmtileg helgi, ég náði upp ágætistani og enn betri hamingjuskammti, en nú er kominn tími til að taka lúll því að á morgun þarf ég að fara í skólann. Þið kannist við þetta, eftir sunnudag kemur mánudagur, öll erum við saman í þessu flippaða mynstri, dag eftir dag, viku eftir viku. Ó, þetta er alveg milljón!
Góða nótt, lifið heil elsku krúttupylsur, hasta luego!
2 comments:
Þú ert komin með svo sítt hár.
Gaman gaman! Skemmtó myndir
Post a Comment