Monday, May 12, 2008

Zommerblog

Jæja, þá er ég búin að bóka flug heim - 27. maí var það heillin! 
Fékk smávegis panikkattakk þegar ég hugsaði út í allt frábæra fólkið sem ég þarf að kveðja, og eins og venjulega finnst mér hroðaleg tilhugsunin um að segja bless og yfirgefa borgina sem ég hef búið í síðustu 4 mánuði. En þá brá ég á það ráð að skoða myndir og hlusta á tónlist sem minna mig á Ísland og breyta þannig panikkatakkinu í nostalgíukast. Ég hlakka svo til að eyða sumrina á Íslandi, það er ekkert betra en íslenskt sumar... 
Ég hlakka til að koma í brakandi ferska íslenska náttúru, og ég hlakka til óteljandi sumarbústaðaferða...
...hlakka til að hitta þessa tvo snillinga... 
...og fólk í lopapeysum...
...hlakka til að hitta erkisnillinginn Magga, þolinmóðasta mann veraldar...
...hlakka til að fara í partý á björtum sumarnóttum og skemmta mér framundir morgun með meistaraflokki kvenna í partýgleði og gríni

Þessi fær ekki mikinn tíma til að læra undir stúdenstpróf eftir að ég kem heim, því að þá tekur við kvolítítæm Guðrúnar & Höllu

...eins og ég sagði, vinir mínir eru snillingar. Þetta sumar getur ekki orðið annað en ógleymanlegt...

Glensmeistararnir Kjeppz og M.C. Rangunnur
...kótilettukrútt...
...dansa, syngja, djamma og heilla glæsipíur upp úr skónum - Kári leikur sé að þessu öllu.

...og svo hlakka ég auðvitað ótrúlega mikið til að hitta þessi tvö.

Já, ég bara varð að skella inn einu væmnu Íslandsbloggi, ætla að njóta síðustu tveggja viknanna hérna í botn, en hlakka líka endalaust mikið til að koma heim. 
Framundan eru tvö lokapróf, kveðjupartý, helgarferð til Madrídar, ferð til Sitges, strandartjill og margt fleira...

Koss og knús til ykkar allra!

3 comments:

Anonymous said...

En frábærlega skemmtilegt! Hlakka til að glensast í sumar!

Anonymous said...

Haha þessi færsla var snilld...hlakka ótrúlega til að sjá þig stelpa, samt aaðeins of langt þangað til!

Halla said...

Dáldið sætt þetta þrollapar.

Og þá er ég ekki að meina mömmu þína og pabba.

Ég vona líka að þau sjái ekki þetta aulakomment hjá mér.